16 Desember 2009 12:00

Brot 17 ökumanna voru mynduð í Hörgslandi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hörgsland í suðurátt, að Hjallalandi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 60 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 28%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 48. 

Eftirlit lögreglunnar í Hörgslandi var tilkomið vegna ábendinga frá íbúum í hverfinu en þeir hafa kvartað undan hraðakstri. Þess má geta að 66% ökumanna óku of hratt eða yfir afskiptahraða þegar lögreglan var við hraðamælingar á þessum sama stað fyrir fáeinum vikum en þá var meðalhraði hinna brotlegu 48 km/klst. Akstursaðstæður í gær voru hinsvegar öllu verri, eða slæm ísing á yfirborði götunnar, og kann það að hafa sitt að segja.