12 Desember 2012 12:00

Brot 15 ökumanna voru mynduð í Hörgslandi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hörgsland í suðurátt, við Giljaland. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 55 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fjórðungur ökumanna, eða 27%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fjórir óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 54.

Vöktun lögreglunnar í Hörgslandi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.