30 September 2009 12:00

Brot 37 ökumanna voru mynduð í Hörgslandi í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hörgsland í suðurátt, að Hjallalandi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 56 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 66%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 48 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fimmtán óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 68. 

Vöktun lögreglunnar í Hörgslandi, en í nágrenninu er Fossvogsskóli, er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.