30 September 2013 12:00

Brot 31 ökumanns var myndað í Hraunbæ í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hraunbæ í vesturátt, í námunda við Skátamiðstöðina. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 44 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 70%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 50 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fjórir óku á 60 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 68.

Vöktun lögreglunnar í Hraunbæ er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.