11 Október 2013 12:00

Brot 39 ökumanna voru mynduð í Hraunbæ í Reykjavík á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hraunbæ í austurátt, í námunda við Skátamiðstöðina. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 69 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 57%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fjórtán óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 64.

Vöktun lögreglunnar í Hraunbæ er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.