21 Maí 2014 12:00

Brot 26 ökumanna voru mynduð í Hraunbæ í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hraunbæ í vesturátt, á móts við Hraunbæ 131. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 56 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í helmingur ökumanna, eða 46%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 55.

Vöktun lögreglunnar í Hraunbæ er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.