29 Apríl 2015 20:22

Brot 26 ökumanna voru mynduð í Hraunbæ í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hraunbæ í vesturátt, á móts við Hraunbæ 140. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 45 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 58%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 54.

Vöktun lögreglunnar í Hraunbæ er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.