28 Apríl 2016 10:32

Brot 21 ökumanns var myndað í Hraunbæ í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hraunbæ í vesturátt, á móts við Hraunbæ 140. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 39 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 54%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 55.

Vöktun lögreglunnar í Hraunbæ er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.