2 Maí 2017 11:33

Brot 31 ökumanns var myndað í Hraunbæ í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hraunbæ í vesturátt, á móts við Hraunbæ 140. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 65 ökutæki þessa akstursleið og því ók næstum helmingur ökumanna, eða 48%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 58.

Vöktun lögreglunnar í Hraunbæ er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.