22 Nóvember 2012 12:00

Brot 22 ökumanna voru mynduð í Hraunbæ í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hraunbæ í vesturátt, á móts við Skátamiðstöðina. Á einni klukkustund, um hádegisbil, fóru 48 ökutæki þessa akstursleið og því ók næstum helmingur ökumanna, eða 46%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 50 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 65.

Vöktun lögreglunnar í Hraunbæ er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.