11 Febrúar 2010 12:00

Brot 72 ökumanna voru mynduð í Hraunsási í Reykjavík á þriðjudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hraunsás í vesturátt, við Eyktarás. Á einni klukkustund, síðdegis, fóru 120 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 60%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Tuttugu og einn ók á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 60.

Eftirlit lögreglunnar í Hraunsási var tilkomið vegna ábendinga frá íbúum í hverfinu en þeir hafa kvartað undan hraðakstri á þessum stað.