23 Febrúar 2011 12:00

Brot 20 ökumanna voru mynduð í Hraunsási í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hraunsás í vesturátt, við Eyktarás. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 36 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 56%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Þrír óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 56. 

Eftirlit lögreglunnar var tilkomið vegna ábendinga um hraðakstur á þessum stað.