24 Júní 2014 12:00

Brot 19 ökumanna voru mynduð í Hraunsási í Reykjavík á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hraunsás í vesturátt, við Grundarás. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 51 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 37%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 60.

Vöktun lögreglunnar í Hraunsási er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.