9 Febrúar 2015 15:51

Brot 12 ökumanna voru mynduð í Hraunsási í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hraunsás í vesturátt, við Grundarás. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 30 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 40%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.

Vöktun lögreglunnar í Hraunsási er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.