29 Febrúar 2008 12:00

Brot 118 ökumanna voru mynduð í Hvalfjarðargöngum í síðustu viku frá miðvikudegi til föstudags eða á liðlega 49 klukkustundum. Vöktuð voru 4.405 ökutæki og því ók lítill hluti ökumanna, eða 2,7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 82 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Fimm óku á 90 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 96.

Við vöktun á sama stað og tíma árið 2007 óku hlutfallslega mun fleiri ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða, eða 6%. Þá var meðalhraði hinna brotlegu sömuleiðis hærri, eða rúmlega 83 km/klst.