31 Mars 2008 12:00

Brot 97 ökumanna voru mynduð í Hvalfjarðargöngum frá föstudegi til mánudags eða á 72 klukkustundum. Vöktuð voru 7.771 ökutæki og því ók lítill hluti ökumanna, eða 1%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 84 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sjö óku á 90 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 109.