13 Mars 2008 12:00

Brot 137 ökumanna voru mynduð í Hvalfjarðargöngum frá mánudegi til fimmtudags í þessari viku eða á rúmlega 68 klukkustundum. Vöktuð voru 5.927 ökutæki og því ók lítill hluti ökumanna, eða 2%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 84 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Fimmtán óku á 90 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 110.

Við vöktun á sama stað í janúar árið 2007 óku hlutfallslega mun fleiri ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða, eða 5%.