5 Mars 2008 12:00

Brot 75 ökumanna voru mynduð í Hvalfjarðargöngum frá mánudegi til miðvikudags eða á liðlega 47 klukkustundum. Vöktuð voru 3.878 ökutæki og því ók lítill hluti ökumanna, eða 1,9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sex óku á 90 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 100.

Við vöktun á sama stað í janúar árið 2007 óku hlutfallslega mun fleiri ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða, eða 4%. Þess má einnig geta að þá var meðalhraði hinna brotlegu svipaður og nú.