11 Apríl 2008 12:00

Brot 129 ökumanna voru mynduð í Hvalfjarðargöngum frá mánudegi til fimmtudags eða á u.þ.b. 72 klukkustundum. Vöktuð voru 6.397 ökutæki og því ók lítill hluti ökumanna, eða 2%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var liðlega 84 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Fjórtán óku á 90 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 106.

Við vöktun á sama stað í maí árið 2007 óku hlutfallslega mun fleiri ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða, eða 5%.