16 Maí 2008 12:00

Brot 296 ökumanna voru mynduð í Hvalfjarðargöngum frá fimmtudegi í síðustu viku til þriðjudags í þessari viku eða á u.þ.b. 120 klukkustundum. Vöktuð voru 13.537 ökutæki og því ók lítill hluti ökumanna, eða 2%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 84 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Tuttugu og fimm óku á 90 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 110.