29 Ágúst 2008 12:00

Brot 56 ökumanna voru mynduð í Hvalfjarðargöngum á mánudag og þriðjudag eða á u.þ.b. 46 klukkustundum. Vöktuð voru 3.015 ökutæki og því ók lítill hluti ökumanna, eða tæplega 2%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 85 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Fimm óku á 90 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 118.

Þetta er svipað brotahlutfall og við síðustu vöktun á þessum stað. Meðalhraði hinna brotlegu er sömuleiðis ámóta og við síðustu mælingu í Hvalfjarðargöngunum.