7 Ágúst 2008 12:00

Brot 122 ökumanna voru mynduð í Hvalfjarðargöngum frá þriðjudegi til fimmtudags eða á u.þ.b. 47 klukkustundum. Vöktuð voru 6.548 ökutæki og því ók lítill hluti ökumanna, eða tæplega 2%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 85 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Fjórtán óku á 90 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 103.

Þetta er svipað brotahlutfall og við síðustu vöktun á þessum stað. Meðalhraði hinna brotlegu er sömuleiðis ámóta og við síðustu mælingu í Hvalfjarðargöngunum.