15 September 2008 12:00

Brot 128 ökumanna voru mynduð í Hvalfjarðargöngum frá þriðjudegi til föstudags í síðustu viku eða á u.þ.b. 74 klukkustundum. Vöktuð voru 8.234 ökutæki og því ók lítill hluti ökumanna, eða 1,6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Tólf óku á 90 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 97.

Þetta er örlítið lægra brotahlutfall en við síðustu vöktun á þessum stað. Meðalhraði hinna brotlegu er sömuleiðis lægri miðað við síðustu mælingu í Hvalfjarðargöngunum og það eru einnig góð tíðindi.