21 Október 2008 12:00

Brot 118 ökumanna voru mynduð í Hvalfjarðargöngum frá fimmtudegi til mánudags eða á tæplega 96 klukkustundum. Vöktuð voru 10.009 ökutæki og því ók lítill hluti ökumanna, eða 1,2%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 83 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Fjórir óku á 90 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 107.