1 Desember 2008 12:00

Brot 122 ökumanna voru mynduð í Hvalfjarðargöngum frá miðvikudegi til mánudags eða á 120 klukkustundum. Vöktuð voru 10.547 ökutæki og því ók mjög lítill hluti ökumanna, eða um 1%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 83 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Þrír óku á 90 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 94.

Áðurnefndur meðalhraði brotlegra ökumanna er sá lægsti í Hvalfjarðargöngum frá því að nýjar reglur um afskiptahraða lögreglu tóku gildi.