30 Janúar 2009 12:00

Brot 155 ökumanna voru mynduð í Hvalfjarðargöngum á einni viku eða frá 22. – 29. janúar. Vöktuð voru 13.582 ökutæki og því ók mjög lítill hluti ökumanna, eða 1%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Ellefu óku á 90 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 113.

Meðalhraði brotlegra ökumanna eftir vikudögum.

Fjöldi brota eftir vikudögum.