12 Febrúar 2009 12:00

Brot 192 ökumanna voru mynduð í Hvalfjarðargöngum á einni viku eða frá 5. – 12. febrúar. Vöktuð voru 15.459 ökutæki og því ók mjög lítill hluti ökumanna, eða 1%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 83 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Tíu óku á 90 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 98.