15 Apríl 2009 12:00

Brot 275 ökumanna voru mynduð í Hvalfjarðargöngum á einni viku eða frá 8. – 15. apríl. Vöktuð voru 17.723 ökutæki og því ók lítill hluti ökumanna, eða tæplega 2%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Tuttugu og tveir óku á 90 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 118.