19 Júní 2009 12:00

Brot 256 ökumanna voru mynduð í Hvalfjarðargöngum á einni viku eða frá 11. – 18. júní. Vöktuð voru 14.485 ökutæki og því ók lítill hluti ökumanna, eða tæplega 2%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Nítján óku á 90 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 103.