21 September 2009 12:00

Brot 152 ökumanna voru mynduð í Hvalfjarðargöngum á sex dögum eða frá 15. – 21. september. Vöktuð voru 15.452 ökutæki og því ók mjög  lítill hluti ökumanna, eða 1%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 83 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Átta óku á 90 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 101.

Niðurstaðan er því afar jákvæð enda er brotahlutfallið mjög lágt, eins og svo oft áður í Hvalfjarðargöngunum.