30 Nóvember 2009 12:00

Brot 128 ökumanna voru mynduð í Hvalfjarðargöngum á einni viku, eða frá 23. – 30. nóvember. Vöktuð voru 14.448 ökutæki og því ók mjög  lítill hluti ökumanna, eða 1%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Átta óku á 90 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 119.

Niðurstaðan er því afar jákvæð enda er brotahlutfallið mjög lágt, eins og jafnan áður í Hvalfjarðargöngunum.