18 Janúar 2010 12:00

Brot 105 ökumanna voru mynduð í Hvalfjarðargöngum á sex dögum eða frá 12. – 18. janúar. Vöktuð voru 11.958 ökutæki og því ók mjög  lítill hluti ökumanna, eða tæplega 1%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Ellefu óku á 90 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 102.

Niðurstaðan er svipuð fyrri hraðamælingum í Hvalfjarðargöngunum en brotahlutfallið í þeim verður að teljast mjög lágt.