13 Janúar 2010 12:00

Brot 99 ökumanna voru mynduð í Hvalfjarðargöngum á fimm dögum eða frá 7. – 12. janúar. Vöktuð voru 10.360 ökutæki og því ók mjög  lítill hluti ökumanna, eða tæplega 1%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 83 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Fimm óku á 90 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 96.

Niðurstaðan er svipuð fyrri hraðamælingum í Hvalfjarðargöngunum en brotahlutfallið í þeim verður að teljast mjög lágt.