10 Mars 2010 12:00

Brot 134 ökumanna voru mynduð í Hvalfjarðargöngum á einni viku eða frá 1. – 8. mars. Vöktuð voru 15.141 ökutæki og því ók mjög  lítill hluti ökumanna, eða 1%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 85 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Fjórir óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 134.

Niðurstaðan er svipuð fyrri hraðamælingum í Hvalfjarðargöngunum en brotahlutfallið í þeim verður að teljast mjög lágt.