4 Júní 2010 12:00

Brot 155 ökumanna voru mynduð í Hvalfjarðargöngum á einni viku eða frá 27. maí til 3. júní. Vöktuð voru 10.348 ökutæki og því ók mjög  lítill hluti ökumanna, eða liðlega 1%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 83 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Tólf óku á 90 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 101.

Niðurstaðan er svipuð fyrri hraðamælingum í Hvalfjarðargöngunum en brotahlutfallið í þeim verður að teljast mjög lágt.