5 Janúar 2011 12:00

Brot 2 ökumanna voru mynduð í Hvalfjarðargöngum í gær en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í suðurátt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 109 ökutæki þessa akstursleið og því óku mjög fáir ökumenn, eða 2%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Hinir brotlegu mældust á 80 og 91 en þarna er 70 km hámarkshraði.