4 Mars 2011 12:00

Brot 4 ökumanna voru mynduð í Hvalfjarðargöngum í gær en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í norðurátt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 99 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða um 4%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 80 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði.