15 Nóvember 2007 12:00

Brot 59 ökumanna voru mynduð í Hvalfjarðargöngum frá mánudegi til miðvikudags eða á tæplega 46 klukkustundum. Vöktuð voru 4.209 ökutæki og því ók lítill hluti ökumanna, eða 1%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 83 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Þrír óku á 90 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 97.

Þess má geta að við undanfarnar vaktanir á sama stað hafa 4% ökumanna ekið of hratt eða yfir afskiptahraða. Sé tekið mið af nýjustu upplýsingum virðist því horfa til betri vegar í Hvalfjarðargöngum hvað umferðarhraða varðar.