24 September 2013 12:00

Brot 5 ökumanna voru mynduð í Hvassaleiti í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hvassaleiti í norðurátt. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 23 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fimmtungur ökumanna, eða 22%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 55.

Vöktun lögreglunnar í Hvassaleiti er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.