12 September 2013 12:00

Brot 12 ökumanna voru mynduð í Hvassaleiti í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hvassaleiti í suðurátt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 31 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 39%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 49.

Vöktun lögreglunnar í Hvassaleiti er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.