1 Desember 2009 12:00

Brot 10 ökumanna voru mynduð í Hvassaleiti í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hvassaleiti í norðurátt, skammt frá félags- og þjónustumiðstöðinni. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 26 ökutæki þessa akstursleið og því ók vel yfir þriðjungur ökumanna, eða 38%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.

Eftirlit lögreglunnar í Hvassaleiti var tilkomið vegna ábendinga frá íbúum í hverfinu en þeir hafa kvartað undan hraðakstri. Ábendingunum var komið á framfæri á fundi sem lögreglan átti með lykilfólki í hverfinu og haldinn var í síðustu viku.