30 September 2008 12:00

Brot 6 ökumanna voru mynduð í Jaðarseli í Breiðholti í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Jaðarsel í suðurátt, að Jöklaseli. Á einni klukkustund, eftir hádegi,  fóru 98 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 70. Á þessum stað í Jaðarseli eru bæði merktar gangbrautir og hraðahindranir.

Vöktun lögreglunnar í Jaðarseli, en í nágrenninu eru bæði leikskólinn Jöklaborg og Seljaskóli, er liður í eftirliti með hraðakstri við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.