2 Febrúar 2022 13:12

Brot 11 ökumanna voru mynduð í Jónsgeisla í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Jónsgeisla í vesturátt, á móts við Jónsgeisla 1. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 139 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 67.

Vöktun lögreglunnar í Jónsgeisla er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað, blautt og snjór var á meðan hraðamælingunni stóð.