14 Febrúar 2024 10:27

Brot 23 ökumanna voru mynduð í Jónsgeisla í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Jónsgeisla í vesturátt, á móts við Jónsgeisla 1. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 145 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 16%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 70.

Vöktun lögreglunnar í Jónsgeisla er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.