13 Febrúar 2015 14:00

Brot 12 ökumanna voru mynduð í Jónsgeisla í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Jónsgeisla í norðurátt, á móts við Jónsgeisla 1. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 144 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 67.

Vöktun lögreglunnar í Jónsgeisla, en mikil hálka var á akbrautinni þegar á henni stóð, er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.