16 Október 2017 09:04

Brot 24 ökumanna voru mynduð í Jónsgeisla í Reykjavík á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Jónsgeisla í norðvesturátt, á móts við Jónsgeisla 1. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 176 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 14%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 77.

Vöktun lögreglunnar í Jónsgeisla er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu,en þess má geta að rigning var á meðan hraðamælingunni stóð.