29 Júlí 2020 09:10

Brot 57 ökumanna voru mynduð í Jónsgeisla í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Jónsgeisla í norðurátt, á móts við Jónsgeisla 1. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 183 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 31%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Tíu óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 77.

Vöktun lögreglunnar í Jónsgeisla er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.