2 Mars 2011 12:00

Brot 58 ökumanna voru mynduð í Jónsgeisla í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Jónsgeisla í vesturátt. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 136 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 43%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna (safnbraut) er 50 km hámarkshraði. Fjórtán óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 83. 

Eftirlit lögreglunnar var tilkomið vegna ábendinga um hraðakstur á þessum stað.