20 Nóvember 2013 12:00

Brot 15 ökumanna voru mynduð í Klettagörðum í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Klettagarða í austurátt, rétt hjá Héðinsgötu. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 110 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 14%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 66 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 82.

Vöktun lögreglunnar í Klettagörðum er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.