16 September 2013 12:00

Brot 9 ökumanna voru mynduð í Klettagörðum í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Klettagarða í suðurátt, við Skarfagarða. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 166 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáeinir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 67.

Vöktun lögreglunnar í Klettagörðum er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.